Ókeypis heimsending ef verslað er fyrir meira en 20,000 kr.

Trudon kerti - TUILERIES
Trudon kerti - TUILERIES
Trudon kerti - TUILERIES
Trudon kerti - TUILERIES
Trudon kerti - TUILERIES
Trudon kerti - TUILERIES
Trudon kerti - TUILERIES
Trudon kerti - TUILERIES
Trudon kerti - TUILERIES
  • Hlaða mynd inn í gallerískoðara, Trudon kerti - TUILERIES
  • Hlaða mynd inn í gallerískoðara, Trudon kerti - TUILERIES
  • Hlaða mynd inn í gallerískoðara, Trudon kerti - TUILERIES
  • Hlaða mynd inn í gallerískoðara, Trudon kerti - TUILERIES
  • Hlaða mynd inn í gallerískoðara, Trudon kerti - TUILERIES
  • Hlaða mynd inn í gallerískoðara, Trudon kerti - TUILERIES
  • Hlaða mynd inn í gallerískoðara, Trudon kerti - TUILERIES
  • Hlaða mynd inn í gallerískoðara, Trudon kerti - TUILERIES
  • Hlaða mynd inn í gallerískoðara, Trudon kerti - TUILERIES

Trudon kerti - TUILERIES

Venjulegt verð
6.900 kr
Söluverð
6.900 kr
Venjulegt verð
Uppselt!
Einingaverð
per 
Með vsk.

Trudon kertaframleiðslan var stofnuð árið 1643 og er elsti kertaframleiðandi heims. Trudon er eini konunglegi kertaframleiðandi Frakklands og sá meðal annars um að útvega Napoléon Bonaparte kerti í hæsta gæðaflokki. Á heimssýningunni í París, árið 1889 þegar Eiffelturninn var opnaður, hlaut Trudon Gullverðlaun fyrir framúrskarandi framleiðslu. 

Trudon kertin hafa fyrir löngu skipað sér sess og verið leiðandi í veraldarsögunni, til að mynda var Trudon fyrsti framleiðandi heims til að framleiða kerti úr býflugnavaxi, en í dag er vaxið unnið úr plöntum og eru kertin því fullkomlega vegan. Hluti af hverju seldu Trudon kerti fer til verndunar býflugna í útrýmingarhættu. Slagorð Trudon er “Deo regique laborant” sem þýðir, "Býflugurnar vinna fyrir Guð og Konung."

Trudon eru heimsklassa lúxus kerti sem vekja athygli hvar sem þau eru, bæði vegna einstakrar lyktar og óviðjafnanlegt útlit, þar sem hvert kerti er að fullu handgert í Frakklandi. Fyrir vikið verður hver krukka einstök í útliti en lögun þeirra er sótt í franskar kampavínsfötur.

TUILERIES lyktin: Blóm og ávaxtatré

Í tilefni af 380 ára afmæli Trudon köfum við aftur í söguna með nýjum ilmi: Tuileries sem heiðrar franska arfleifð og þær óteljandi sögur sem hann geymir.

Tuileries ilmurinn sækir innblástur í sjaldgæft skjal sem geymt er á franska þjóðskjalasafninu: Gazette des Atours de la Reine. Það sem virðist vera venjuleg minnisbók safnaði greifynjan Geneviève d'Ossun – Frönsk hirðkona sem þjónaði sem þjónustukona og fyrsta vinnukona Marie Antoinette mörgum efnissýnum sem notuð voru til að sérsníða kjóla og konungleg klæði.

Ilmurinn er hugsaður sem virðing fyrir rósinni, uppáhaldsblómi frönsku drottningar.

Lyktarprófíll:

Höfuð: Bleik ber, sólber og mandarína.

Hjarta: Hvít blóm, hindber, geranium, rós og mandarína.

Grunnur: Musk, Patchouli, Sandalviður og Vanilla

Kertin fást í nokkrum stærðum og eru öll handgerð frá grunni og koma í fallegri Trudon gjafaöskju.

70gr kerti: H: 6,5 cm Ø: 5,5 cm. Einn kveikiþraður og brennslutími 18-20 klst.
270gr kerti: H: 10,5 cm Ø: 9 cm. Einn kveikiþraður og brennslutími 55-60 klst.
800gr kerti: H: 16 cm Ø: 13,5 cm. Þrír kveikiþræðir og brennslutími 110-120 klst.
2,8kg kerti: H: 21,5 cm Ø: 18 cm Fimm kveikiþræðir og brennslutími yfir 300 klst.

Varðandi umhirðu og brennslu á kertinu er mikilvægt að brenna kertið ekki í of lengi í sentt - Það er eins mikilvægt að passa upp á það að bræða allt efsta lag kertisins í hverjum bruna.  Með því verður komið í veg fyrir að kertið brenni sig hraðar niður í miðjunni. Sé þetta gert á kerið að brenna í fullkomnu jafnvægi niður á botn. Látið kertið ekki standa í dragsúr eða nálægt eldfimum efnum, til að mynda gardínum sem geta skapað brunahættu.